Vegna verkfalls flugmanna hjá Icelandair gat finnska fimleikaliðið ekki ferðast til landsins í gær eins og fyrirhugað var. Vegna þessa var ákveðið að fresta keppni á Norðurlandamóti drengja í áhaldafimleikum til morguns.
Gefin hefur verið út breytt keppnisáætlun mótsins sem fram fer í Íþróttamiðstöðinni Björk. Finnarnir áttu að koma í gær en lenda þess í stað í dag. Vegna þessa var ákveðið að fresta keppni í einstaklings- og liðakeppni fram á sunnudagsmorgun, en þá munu úrslit í keppni á áhöldum einnig ráðast.
Mótið mun því ekki fara fram laugardaginn 10. maí eins og fyrirhugað var heldur mun allt mótið fara fram í einum hluta á sunnudeginum 11. maí. Mótið hefst klukkan 9:50 og kostar þúsund krónur inn en börn yngri en 14 ára fá frítt.
Þess má geta að næsti samningafundur í viðræðum um kjör flugmanna hefur verið boðaður á mánudag í húsnæði ríkissáttasemjara.