Usain Bolt segist nú ætla að einbeita sér frekar að 200 metra hlaupi en 100 metra hlaupi, og hann dreymir um að hlaupa 200 metrana á innan við 19 sekúndum áður en ferlinum lýkur.
„Ég tel að ég sé búinn að gera nóg með 100 metra hlaupið. Ég veit að fólk vill sjá mig hlaupa hratt í 100 metrunum en ég elska 200 metra hlaupið og ég vil gera eitthvað fyrir mig. Þess vegna legg ég áhersluna núna á 200 metra hlaup,“ sagði Bolt eftir að hafa leitt sveit Jamaíku til sigurs í 4x100 metra boðhlaupi á Samveldisleikunum í Glasgow.
Bolt setti heimsmetið í 200 metra hlaupi á HM í Berlín fyrir fimm árum en það er 19,19 sekúndur. Hann á að sjálfsögðu einnig heimsmetið í 100 metra hlaupi sem er 9,58 sekúndur.
„Heimsmetstíminn getur enn lækkað, það er aldrei að vita hver mætir næst og eignar sér sviðið. Ég hef sagt að ég vilji hlaupa undir 19 sekúndum, það er einn stærsti draumurinn minn, svo ég mun leggja hart að mér og við sjáum hverju það skila,“ sagði Bolt. Hann hleypur næst í Rio de Janeiro í Brasilíu 14. ágúst þegar hann keppir í 100 metra hlaupi.