„Þetta er mitt besta ár í sundinu til þess. Ég hef aldrei fengið fleiri FINA-stig en á þessu ári né verið ofar á heimlistanum en um þessar mundir," segir Eygló Ósk Gústafsdóttir, úr Sundfélaginu Ægi, en hún var í dag útnefnd sundkona ársins af Sundsambandi Íslands.
„Ég bætti mig um tvær sekúndur í 200 m baksundi í 25 m lauginni og tókst loksins að bæta mig aftur í sömu grein í 50 metra lauginni. Ég er mjög ánægð með árið og hlakka til næsta árs."
Eygló segir að hápunktar ársins hafi verið miklar framfarir á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug í nóvember. „Þar kom ég sjálfri mér á óvart með miklum framförum," segir Eygló. „Síðan var HM í 25 metra lauginni í Doha á dögunum mikil ævintýri og það að ná 10. sætinu í 200 m baksundi var afar skemmtilegt."
Eygló Ósk segir að markmiðið á næsta ári sé að ná inn í úrslit í 200 m baksundi á heimsmeistaramótinu í 50 metra laug sem fram fer í Rússlandi næsta sumar. „Einnig er markmiðið að æfa meira og betur og halda áfram að taka framförum og ná fleiri Íslandsmetum."
Eygló Ósk er 19 ára gömul og lýkur stúdentsprófi frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti í vor. Hún segist ekki eiga mikið eftir af náminu. Þar af leiðandi geti hún einbeitt sér að sundinu en í það fer mikill tími. „Langtímamarkmiðið er að taka þátt í Ólympíuleiknum í Río árið 2016," segir Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona ársins 2014.
Lengra og ítarlegra viðtal er við Eygló Ósk á meðfylgjandi myndskeiði.
Yfirlit yfir Íslandsmet Eyglóar Óskar á árinu 2014 | ||||||
Hvar og hvenær | Laugarlengd | Grein | Tími | Íslandsmet | Fyrra met | Annað |
Opna danska meistaram. 28-3-14 | 50 m laug | 200 m baksund | 2;10,34 | X | Sjálf 2;10,38 | |
Opna danska meistaram. 29-3-14 | 50 m laug | 50 m baksund | 0;28,61 | X | Ingibj.Kr. 0;28,62 | |
ÍM-25 14-11-14 | 25 m laug | 200 m baksund | 2;04,78 | X | Sjálf 2;06,59 | |
ÍM-25 14-11-14 | 25 m laug | 200 m fjórsund | 2;13,10 | X | Sjálf 2;13,41 | |
ÍM-25 15-11-14 | 25 m laug | 100 m fjórsund | 1;01,59 | X | Ragnh.Ragn.1;01,72 | |
ÍM-25 15-11-14 | 25 m laug | 100 m baksund | 0;58,83 | X | Sjálf 0;59,26 | 1. spr.boðsund |
ÍM-25 16-11-14 | 25 m laug | 100 m baksund | 0;58,58 | X | Sjálf 0;58,83 | |
HM-25 Doha,Katar 4-12-14 | 25 m laug | 100 m fjórsund | 1;01,59 | X | Sjálf 1;01,59 | |
ÍM-50 12-4-14 | 50 m laug | 100 m baksund | 1;01,08 | Jöfnun | Á það sjálf | 1.spr.boðs. |
ÍM-25 15-11-14 | 25 m laug | 50 m baksund | 0;27,45 | Jöfnun | Ingibj.Kr. | |
Þátttakandi í boðsundsmeti | Þátttakendur | |||||
ÍM-25 Reykjavík A-sveit 16-11-14 | 25 m laug | 4x50 m skr.blandað | 1;38,63 | X | 1;39,78 | Alex-Eygló Ósk-Kristinn Þ.-Inga Elín |
HM-25 Katar, landssveit 4-12-14 | 25 m laug | 4x50 m fjór.blandað | 1;46,56 | X | 1;48,72 | Eygló Ósk-Hrafnh.-Daníel H.-Davíð Hild. |