Það þurfti ekki að fara langt niður stafrófið til að finna sigurvegarana í Ármannshlaupi Eimskips sem fór fram í frábæru veðri í Reykjavík í kvöld. Í karlaflokki sigraði Arnar Pétursson á tímanum 32:22 og í kvennaflokki var hlutskörpust Andrea Kolbeinsdóttir á tímanum 37:39.
Í öðru sæti í karlaflokki var Hugi Harðarson á tímanum 34:54 og í því þriðja varð Valur Þór Kristjánsson á 35:19.
Í öðru sæti í kvennaflokki varð Marianne Kämpf á 39:18 og Helga Guðný Elíasdóttir varð í því þriðja á 39:49.