Stórsigur norðanmanna í Laugardal

Jón Benedikt Gíslason skoraði tvö marka SA og lagði eitt …
Jón Benedikt Gíslason skoraði tvö marka SA og lagði eitt upp. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

SA Víkingar báru í kvöld sigurorð af Skautafélagi Reykjavíkur, 7:1, á Íslandsmóti karla í íshokkí en leikurinn fór fram í Laugardalnum.

Með sigrinum hafa Víkingar 10 stig og í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Esju sem vermir efsta sætið. SR-ingar, sem léku til úrslita í fyrra, hafa hinsvegar einungis eitt stig að fimm leikjum loknum.

Víkingar náðu frumkvæðinu hvað markaskorun varðaði strax í fyrstu lotu og náðu þriggja marka forystu í henni. Tvö marka Víkinga voru þegar þeir voru manni fleiri á ísnum en alls komu fjögur af sjö mörkum þeirra þegar liðið hafði yfirtölu á ísnum þannig var ástatt.

Víkingar juku forystu sína enn frekar þegar þeir bættu við tveimur mörkum í annarri lotu, 5:0. Það var ekki fyrr en í upphafi þriðju lotu sem heimaliðið komst á blað með marki frá Miloslav Racansky. Víkingar áttu hinsvegar lokaorðið með tveimur mörkum frá þeim Orra Blöndal og Heiðari Erni Kristveigarsyni.

Andri Már Mikaelsson fyrirliði Víkinga var ánægður með sigurinn. „Við vorum frekar fáliðaðir í kvöld en vorum heppnir að ná að skora snemma og náðum að halda þeim útúr leiknum til að byrja með. Þeir sýndu hvað þeir gátu í lokin á öðrum leikhluta og í byrjun þriðja. Okkar leikplan gekk frekar vel upp í kvöld“ sagði Andri Már.

Mörk/stoðsendingar SR:

Miloslav Racansky 1/0

Michal Danko 1/0

Refsingar SR: 14 mínútur.

Mörk/stoðsendingar SA Víkinga:

Jón B. Gíslason 2/1

Orri Blöndal 2/0

Jussi Sipponen 1/4

Ingvar Þór Jónsson 1/2

Heiðar Örn Kristveigarson 1/1

Andri Már Mikaelsson 0/1

Hafþór Andri Sigrúnarson 0/1

Refsingar SA Víkinga: 10 mínútur.

Í kvennaflokki léku Björninn og SA Ynjur og lauk þeim leik með sigri Ynja sem gerðu átt mörk gegn tveimur mörkum Bjarnarins. Ynjur hafa 11 stig á toppi deildarinnar eftir fjóra leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert