Floyd Mayweather er enn ósigraður í boxhringnum en í nótt sigraði hann MMA-kappann Conor McGregor í tíu lotu boxbardaga.
Írinn McGregor hóf bardagann af talsverðum krafti en Mayweather sýndi hvað í honum býr þegar líða tók á.
Dómari stöðvaði síðan bardagann í tíundu lotu og var Mayweather dæmdur sigur með tæknilegu rothöggi. Hann er því enn ósigraður í boxhringnum, hefur unnið 50 bardaga, en Mayweather hefur sagt að þetta hafi verið síðasti bardagi hans á ferlinum.