„Guðlaugur Þór og ég höldum með Liverpool en Bjarni Benediktsson heldur með Manchester United,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, í Fyrsta sætinu, íþróttahlaðvarpi mbl.is og Morgunblaðsins, þegar rætt var um enska boltann.
Bjarni hafði betur í formannsslag Sjálfstæðisflokksins í nóvember á síðasta ári þar sem hann hlaut 59% atkvæða en Guðlaugur Þór, sem bauð sig fram á móti honum, hlaut 40% atkvæða.
„Ég finn alltaf þessa Manchester United og Liverpool-togstreitu á milli Bjarna og Guðlaugs Þórs,“ sagði Katrín.
Blaðamaður skaut þá inn í að það hafi líka verið togstreita á milli þeirra um formannsembætti Sjálfstæðisflokksins.
„Ég hugsa að það hafi kannski bara sprottið út frá þessari United og Liverpool-togstreitu,“ bætti Katrín meðal annars við í léttum tón.
Hægt er að hlusta á umræðuna í heild í spilaranum hér fyrir ofan en þátturinn er einnig aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum.