Íslendingarnir Katrín Tanja Davíðsdóttir, Björgvin Karl Guðmundsson og Annie Mist Þórisdóttir tóku þátt á heimsleikunum í Crossfit um helgina og uppskáru vel.
Katrín Tanja Davíðsdóttir endaði í sjöunda sæti, efst af Íslendingunum, og fékk fyrir það 31 þúsund bandaríkjadali eða fjórar milljónir íslenskra króna í verðlaunafé.
Björgvin Karl lenti í 11. sæti og fékk fyrir það um tvær og hálfa milljón íslenskra króna í verðlaunafé. Annie Mist lenti svo í 13. sæti og fékk tæplega tvær milljónir íslenskra króna.
Vegleg verðlaun eru fyrir að vinna keppnina en þau Jeffrey Adler frá Kanada og Laura Horvath frá Ungverjalandi báru sigur úr býtum og fékk hvort um sig sem nemur um 40 milljónum íslenskra króna.