Ilonen fagnaði sigri í Jakarta

Mikko Ilonen.
Mikko Ilonen. Reuters

Miko Ilonen frá Finnlandi sigraði á opna indónesíska meistaramótinu í golfi í Jakarta í dag en hann lék samtals á 9 höggum undir pari. Ilonen fékk skolla (+1) á lokaholunni en það skipti ekki máli þegar uppi var staðið og Franki Minoza frá Filipseyjum varð annar á 8 höggum undir pari líkt og Indverjinn Shiv Kapur og Andrew Tampion. Birgir Leifur Hafþórsson lék á 72 höggum í dag eða einu höggi yfir pari og samtals var hann á 5 höggum yfir pari sem skilaði honum í 59. sæti.

Lokastaðan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert