Lokastaðan á mótinu. ">
Vijay Singh nýtti tækifærið sem hann fékk á lokakeppnisdegi Arnold Palmer meistaramótsins í golfi á PGA-mótaröðinni í kvöld. Singh lék lokahringinn á 67 höggum eða þremur höggum undir pari og samtals lék hann á 8 höggum undir pari. Rocco Mediate varð annar á 6 höggum undir pari en hann lék lokahringinn á 67 höggum. Tiger Woods lék lokahringinn á 6 höggum yfir pari eða 76 höggum og endaði hann í 22. sæti á 3 höggum yfir pari vallar. Lokastaðan á mótinu.