Staðan á mótinu.
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG er að leika á þriðja keppnisdegi Aa Saint Omer-meistaramótinu í golfi í Lumbres í Frakklandi. Birgir var á 2 höggum yfir pari eftir 36 holur og í dag hefur hann leikið fyrstu 8 brautirnar á tveimur yfir pari. Hann lék fyrsta hringinn á einu höggi undir pari, 71 höggi, í gær lék hann á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari. Eins og staðan er þessa stundina er Birgir í 52. sæti ásamt fjölda kylfinga.