Heiðar Davíð í raðir GR

Heiðar Davíð Bragason.
Heiðar Davíð Bragason. Eyþór Árnason

Heiðar Davíð Bragason atvinnukylfingur hefur gengið í raðir Golfklúbbs Reykjavíkur en Heiðar hefur á undanförnum árum leikið með Kili úr Mosfellsbæ.

Heiðar er þrítugur að aldri og á undanförnum tveimur árum hefur hann leikið sem atvinnukylfingur á sænsku mótaröðinni. Hann varð Íslandsmeistari í höggleik á Hólmsvelli í Leiru árið 2005 en hann hefur tvívegis verið stigameistari á Kaupþingsmótaröðinni, 2003 og 2005. Sem áhugakylfingur hefur Heiðar náð að sigra á tveimur mótum, opna spænska meistaramótinu og opna velska meistaramótinu.

Á undanförnum mánuðum hafa þrír afrekskylfingar og atvinnumenn gengið í raðir GR. Sigurþór Jónsson úr GK, Ottó Sigurðsson úr GKG og Heiðar Davíð Bragason úr GKj. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert