Sandy Lyle er hættur á Opna breska mótinu í golfi. Hann gekk af velli eftir að hafa leikið nokkrar holur og var hann þá kominn 11 höggum yfir pari.
„Ég byrjaði mjög illa og átti nokkur hræðileg högg þannig að ég hélt ég myndi gera meira gagn með því að hætta bara í stað þess að halda áfram. Ég hef leikið í við miklu verri aðstæður en þetta, en völlurinn er svo krefjandi að þegar maður er ekki á boltanum þá er þetta vonlaust,“ sagði Lyle.