Þórður Rafn Gissurarson fagnaði sigri í kvöld á meistaramóti Golfklúbbs Reykjavíkur í fyrsta sinn á ferlinum. Þórður lék lokahringinn á 72 höggum eða einu yfir pari Grafarholtsvallar og samtals var hann á 288 höggum. Pétur Freyr Pétursson varð annar á 296 höggum og Heiðar Davíð Bragason endaði í þriðja sæti á 297 höggum.