Heiðar Davíð Bragason úr GR er með þægilega stöðu fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í höggleik í Eyjum. Hann á fimm högg á Björgvin Sigurbergsson úr Keili.
Heiðar Davíð lék á tveimur höggum undir pari í dag og alls á 6 undir pari en Björgvin var á einum undir í dag en var á parinu fyrir þriðja hringinn.
Ottó Sigurðsson, GR, er á pari samanlagt en hann lék á parinu í dag.