Forráðamenn stærstu kvennamótaraðar heims, LPGA í Bandaríkjunum, eru fastari fyrir en margir verslunar- og þjónustuaðilar á Íslandi. Skulu kylfingar læra ensku ellegar spila þær ekki á mótaröðinni.
Allmargar keppenda koma frá Asíu og hafa litla kunnáttu í ensku og nú hafa menn sett þeim stólinn fyrir dyrnar. Lærið ensku og þið fáið að spila og ekki múkk um það meira. Engar sektir eða viðvaranir heldur hreint og beint keppnisbann á LPGA mótaröðinni.