Sigurpáll Geir Sveinsson, úr Kili, átti frábæran hring í dag þegar hann lék annan hringinn á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina á Fleesensee vellinum í Þýskalandi. Hann lék á 66 höggum í dag, sex höggum undir pari.
Sigurpáll var á parinu í gær og er því samanlagt á sex höggum undir pari.
Sigurþór Jónsson úr GR er einnig búinn að spila í dag, kom inn á 70 höggum, tveimur höggum undir pari og er samtals á tveimur höggum yfir pari.
Staðan eftir fyrsta hring.