Sergio Garcia frá Spáni er einu höggi á eftir efstu mönnum á Castellon meistaramótinu í golfi sem fram fer á Spáni en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Þjóðverjinn Martin Kaymer og Ástralinn Robert Allenby eru efstir á 12 höggum undir pari.
Mikill vindur hefur sett keppnishaldið úr skorðum en þriggja tíma hlé var gert á fyrsta keppnisdegi vegna veðurs. Önnur umferð kláraðist því ekki fyrr en í morgun.
Garcia er í 10. sæti heimslistans en hann hefur ekki náð að landa sigri á atvinnumóti á þessu ári.