Sú yfirlýsing sem Tiger Woods flutti rétt í þessu á Flórída varpaði ekki frekara ljósi á hvenær hann hyggst snúa aftur á golfvöllinn. Margir höfðu velt því fyrir sér hvort hann myndi lýsa því yfir á fundinum að hann yrði á meðal keppenda á Masters mótinu í apríl en svo fór ekki.
Eftir sem áður er líklegt að Tiger muni snúa aftur á þessu ári en yfirlýsing hans benti ekki til þess að hann hafi tekið einhverja ákvörðun í þeim efnum.