Ólafur Björn Loftsson er með tveggja högga forysu eftir fyrri daginn á Flugfélags Íslands mótinu í golfi í Vestmannaeyjum.
Íslandsmeistarinn átti góðan hring og lék hann á fimm höggum undir pari. Kristján Þór Einarsson, sem varð Íslandsmeistari síðast þegar mótð var haldið í Eyjum, er á þremur undir pari, Hlynur Geir Hjartarsson á tveimur undir og þeir Björgvin Sigurbergsson og Þórður Rafn Gissurarson eru á einu höggi undir pari.
Valdís Þór ajónsdóttir er á tveimur höggum yfirpari í kvennaflokki og er með sex högga forystu á þær Írsi Kötlu Guðmundsdóttur og Þórdísi Geirsdóttur.