Tiger Woods slær vel á Mastersmótinu en pútterinn hefur ekki virkað hjá honum á fyrri níu holunum í það minnsta, en hann er á einu höggi yfir pari eftir fyrri níu í dag.
Ef hann heldur áfram að slá jafn vel á síðari níu er hann öruggur um að komast áfram því líklega verður skorið við fimm yfir pari í heildina og hann er sem stendur á einu höggi yfir pari og afskaplega ólíklegt að hann klikki á fimm púttum líkt og á fyrri níu holunum.