Tiger Woods er í 3. sæti á samtals sex höggum undir pari þegar annar dagurinn á Opna breska meistaramótinu í golfi er langt kominn. Brandt Snedeker er efstur á tíu undir pari og Adam Scott er höggi á eftir.
Scott og Woods voru báðir á 67 höggum í dag eða þremur undir pari en Snedeker var á 64 höggum og jafnaði vallarmetið.
Paul Lawrie, Matt Kuchar og Graeme McDowell eru allir á fjórum undir pari samtals og hafa allir lokið leik í dag.
Niðurskurðarlínan virðist ætla að vera þrjú högg yfir par. Þeir sem eru á því skora fá væntanlega að halda leik áfram um helgina ef fram heldur sem horfir.