Park Inbee frá Suður-Kóreu vann í dag sinn sjöunda stóra titil í golfi þegar hún bar sigur úr býtum á opna breska meistaramótinu.
Inbee átti frábæran lokahring sem hún spilaði á 65 höggum eða sjö höggum undir pari og hún lauk keppni á 12 höggum undir pari eða á 276 höggum. Landa hennar, Ko Jin-Young , varð önnur á 279 höggum.