Þýski kylfingurinn Stephan Jaeger varð í gær fyrstur til þess að klára hring á Web.co- mótaröðinni á 58 höggum, en Jaeger lék hringinn á 12 undir pari. Web.com-röðin er B-deild PGA-mótaraðarinnar, sem einnig hófst í gær.
Jaeger er í 102. sæti á peningalista Web.com-mótaraðarinnar í ár, en hann hefur aldrei verið á meðal tíu efstu kylfinga í móti á röðinni og því kemur þessi góði hringur hans nokkuð á óvart. Jaeger lék hins vegar hring í mótaröðinni í Dóminíska lýðveldinu á 62 höggum nýlega.
The putt heard 'round the golf world ...
— Web.com Tour (@WebDotComTour) July 29, 2016
We finally have our Mr. 58. https://t.co/ObRIGYnk76