Birgir Leifur Hafþórsson lék virkilega vel á fjórða og síðasta degi PMG-bikarsins sem fram fer á Royal Waterloo-golfvellinum í Belgíu en mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni, þeirri næststerkustu í Evrópu. Birgir lék á 66 höggum, fékk sjö fugla og komst upp í fjórða sæti, glæsilegur árangur.
Kylfingurinn lék hringina fjóra á samtals 16 höggum undir pari og var þremur höggum á eftir efsta manni, Austurríkismanninum Martin Wiegele.
Birgir fékk aðeins einn skolla og tíu pör á hringnum í dag.