Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson spilaði vel á öðrum hring Opna Kasakstan-mótsins í golfi sem er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Eins og sakir standa er hann öruggur um að komast í gegnum niðurskurðinn en enn eiga flestir kylfingar eftir að ljúka leik.
Birgir Leifur fór snemma af stað í morgun og byrjaði hringinn afar vel. Hann fékk tvo fugla á fyrstu tveimur holunum og alls þrjá fugla á fyrstu fjórum. Hann bætti svo við fjórða fuglinum á 10. holu en fékk tvo skolla áður en hann lauk hring á fugli. Hann lék því samtals á þremur höggum undir pari vallarins.
Birgir Leifur spilaði fyrsta hringinn í gær á pari vallarins og er því samtals á -3, en eins og staðan er núna verður skorið niður við -1 og er Birgir því tveimur höggum frá línunni. Eins og fyrr segir eru fæstir kylfingar komnir í hús og því gæti það breyst.
Verðlaunaféð er með því hæsta sem gerist á mótaröðinni og nánast allir sterkustu kylfingar mótaraðarinnar keppa á þessu móti.