Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í þriðja sæti á Sanya-mótinu á LET-Evrópumótaröðinni í golfi sem lauk á Hainan-eyju í Suður-Kínahafi í nótt að íslenskum tíma.
Valdís Þóra lék lokahringinn á 72 höggum eða á pari vallarins og lauk keppni á sjö höggum undir pari. Þetta er besti árangur Valdísar á Evrópumótaröðinni og árangur hennar á mótinu tryggði henni þátttökurétt á mótaröðinni á næsta tímabili.
Hún fékk 18 þúsund evrur í verðlaunafé sem jafngildir um 2,2 milljónum íslenskra króna og er komin í 50. sæti á stigalista mótaraðarinnar.
Celine Boutier frá Frakklandi sigraði á mótinu en hún lék samtals á 12 höggum undir pari.