Ólafía Þórunn Kristinsdóttir bar sigur úr býtum á B59 Hotel-mótinu í golfi sem fram fór á Garðavelli á Akranesi um helgina. Um er að ræða fyrsta mót ársins í golfmótaröð Golfsambands Íslands á árinu 2020.
Ólafía hafði að lokum betur eftir spennandi keppni við Valdísi Þóru Jónsdóttur. Ólafía lauk leik á þremur höggum undir pari og var einu höggi á undan Valdísi. Réðust úrslitin á 18. og síðustu holunni.
Valdís var með forskot stærstan hluta mótsins og var með fimm högga forystu fyrir lokahringinn. Ólafía saxaði hægt og rólega á forskotið og voru þær jafnar á þremur höggum undir pari fyrir lokahringinn. Á henni fékk Ólafía par og Valdís skolla.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir varð þriðja á einu höggi yfir pari og Ragnhildur Kristinsdóttir í fjórða sæti á fjórum höggum yfir pari. Heildarstöðu mótsins má nálgast hér.