Stjarnan fékk í dag afhentan Íslandsmeistaratitilinn í DHL-deild kvenna í handknattleik eftir sigurinn á Akureyri, 36:18, í Ásgarði í dag. Það var ljóst eftir sigur Gróttu á Val í gær að Stjarnan væri orðin meistari og Garðabæjarliðið innsiglaði sigur í deildinni með glæsibrag.