Handknattleiksdeildir Fram og Vals komust í kvöld að samkomulagi um félagaskipti Sigfúsar Páls Sigfússonar úr Fram yfir í Val. Í sameiginlegri tilkynningu sem félögin sendu frá sér rétt í þessu kemur fram að um fullnaðarsamkomulag sé að ræða og málinu sé lokið af beggja hálfu.