Íslandsmeistarar Stjörnunnar gerðu sér lítið fyrir og lögðu frönsku meistarana í HB Metz Moselle Lorrai, 23:22, í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu en riðillinn sem Stjarnan spilar í er leikinn í Ungverjalandi.
Stjarnan hafði yfir allan tímann og í leikhléi var munurinn fimm mörk, 11:6. Í franska liðinu er uppistaðan leikmenn úr franska landsliðinu og sigur Stjörnukvenna því afar glæsilegur.
Rakel Dögg Bragadóttir og Ásta B. Agnarsdóttir voru atkvæðamestar í liði Stjörnunnar með 7 mörk hver og þá átti Florentina Grecu markvörður frábæran leik en hún varði 23 skot í leiknum.