Fram og Valur áfram í bikarnum

Fram vann öruggan sigur á Akureyri í kvöld.
Fram vann öruggan sigur á Akureyri í kvöld. Brynjar Gauti

Fram og Valur tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum í bikarkeppni kvenna í handknattleik. Fram sótti Akureyri heim og vann stórsigur, 28:16, og Valur hafði betur gegn FH í Kaplakrika, 34:28.

Ásta Birna Gunnarsdóttir var markahæst í liði Fram með 8 mörk og næst kom Eva Hrund Harðardóttir með 6 mörk. Hjá Akureyri var Arna Valgerður Erlingsdóttir atkvæðamest með 6 mörk og Anna Teresa Morales skoraði 5 mörk.

Eva Barna var markahæst í liði Vals gegn FH með 7 mörk og næstar komu Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir og Nora Valovic með 6 mörk hver. Í liði FH voru Ragnhildur Guðmundsdóttir og Hildur Þorgeirsdóttir markahæstar með 7 mörk hver.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert