Framarar í Tyrklandsferð

Karlalið Fram í handknattleik á fyrir höndum ferð til höfuðborgar Tyrklands til þátttöku í 3. umferð í Áskorendakeppni Evrópu en þegar dregið var í morgun dróst Framliðið á móti tyrkneska liðinu Ankara Il Özel Idare SK. Semji liðin ekki að leika báða leikina annað hvort hér heima eða í Tyrklandi þá er ljóst að fyrri leikurinn fer fram ytra 17. og 18. nóvember. Leikmenn Ankara Il Özel kom síðan hingað til lands helgina 24. og 25. nóvember.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert