Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad Real, þar af eitt úr vítakasti, þegar liðið sigraði norska liðið Drammen, 29:23, á útivelli í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í kvöld.
Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og í leikhlé hafði spænska stórliðið eins marks forystu, 14:13. Í seinni hálfleik náðu Ciudad Real yfirhöndinni og innbyrti öruggan sigur.
Torsten Laen var markahæstur í liði Ciudad Real með 7 mörk en liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína í riðlinum. Hjá Drammen var Frode Hagen, fyrrum leikmaður Barcelona, markahæstur með 5 mörk.