Stjarnan skaust á topp N1 deildarinnar í handbolta karla í dag þegar liðið vann Akureyri fyrir norðan 29:26 eftir að heimamenn höfðu 16:14 yfir í leikhléi. Magnús Stefánsson gerði 8 mörk fyrir Akureyrir og Goran Gusic 7 en hjá Stjörnunni var Heimir Örn Árnason með átta og Ólafur Víðir Ólafsson sjö.