Svíar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum í risabikarkeppninni, Super Cup, í handknattleik þegar þeir báru sigurorð af Tékkum, 30:29, í Dortmund. Í hinum undanúrslitaleiknum eigast við heimsmeistarar Þjóðverja og Pólverjar en Svíar eiga titil að verja í keppninni.
Maðurinn á bakvið sigur Svíanna var markvörðurinn Per Sandström. Hann leysti Dan Beutler af hólmi í seinni hálfleik og lokaði markinu á löngum köflum. Marcus Ahlm skoraði sigurmarkið einni og hálfri mínútu fyrir leikslok. Tékkar fengu gullið tækifæri til að jafna á lokasekúndum en Sandström varði skot af línu og Svíar fögnuðu sigri.
Jonas Larholm var markahæstur í liði Svía með 6 mörk en hjá Tékkum var Jiri Vitek atkvæðamestur með 7 mörk.