Sigurður Ari Stefánsson skoraði 8 mörk fyrir Elverum í 30:28-sigri liðsins s.l. miðvikudag gegn Sandefjord á útivelli. Þetta var síðasta umferðin í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik fyrir Evrópumeistaramót landsliða sem hefst í Noregi í janúar. Elverum er í 5. sæti deildarinnar.
Ingimundur Ingimundarson skoraði 5 mörk fyrir Elverum og Samúel Ívar Árnason skoraði 3 mörk.