Guðjón og Einar í stórum hlutverkum

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk í kvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk í kvöld. Ómar Óskarsson

Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson voru mjög áberandi í liðum Gummersbach og Minden í þýsku 1. deildinni í dag en Gummersbach vann leik liðanna á heimavelli sínum í Köln, 32:25.

Guðjón Valur skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach, ekkert þeirra úr vítakasti, en Vedran Zrnic var markahæstur hjá liðinu með 8 mörk, 5 þeirra úr vítaköstum. Róbert Gunnarsson skoraði 3 mörk fyrir Gummersbach og Sverre Jakobsson var rekinn tvisvar af velli.

Einar Örn var markahæsti leikmaður Minden í leiknum en hann skoraði 6 mörk, eitt þeirra úr vítakasti.

Birkir Ívar Guðmundsson var í marki N-Lübbecke sem vann óvæntan sigur á toppliði Nordhorn, 31:30. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo sem vann Wetzlar, 27:19.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert