„Förum bjartsýnir út"

Það var létt yfir mönnum eftir æfingaleik Íslendinga gegn Tékkum í Laugardalshöll í gærkvöldi. Íslendingar lögðu Tékka 33:28 og sagði Ólafur Stefánsson fyrirliði landsliðsins leikinn hafa minnt á sín upphafsár í íþróttum. Snorri Steinn Guðjónsson sagði ýmislegt mega laga, en að liðið sé á réttri leið og menn fari því bjartsýnir út.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert