Ólafur tók ekki þátt á æfingu Íslands

Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins.
Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins. Árni Sæberg

Ólafur Stefánsson landsliðsmaður í handknattleik tók ekki þátt á æfingu íslenska liðsins í Þrándheimi í dag. Sjúkrateymi íslenska liðsins tók Ólaf í meðferð á meðan æfingin fór fram en Ólafur hefur fundið fyrir eymslum í lærvöðva.

Alfreð Gíslason þjálfari íslenska liðsins segir að meiðsli Ólafs eigi ekki að koma í veg fyrir að hann leiki gegn Svíum á morgun.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert