Íslendingar töpuðu með 9 marka mun gegn Evrópumeistaraliði Frakka í dag á EM í Þrándheimi, 30:21. Staðan í hálfleik var 17:8 fyrir Frakka. Íslendingar fara því án stiga í milliriðilinn en Frakkar taka 4 stig með sér og Svíar 2. Í milliriðlinum mæta Íslendingar Þjóðverjum, Spánverjum og Ungverjum.
Ísland er því eina liðið sem verður án stiga í milliriðlinum. Frakkar verða eins og áður segir með 4 stig en Svíar, Þjóðverjar, Spánverjar og Ungverjar verða með 2 stig. Næsti leikur Íslands er á þriðjudaginn.
Leikurinn var í beinni textalýsingu á mbl.is.
Mörk Íslands: Alexander Petersson 5, Snorri Steinn Guðjónsson 4
Guðjón Valur Sigurðsson 4, Logi Geirsson 2, Einar Hólmgeirsson 2, Róbert Gunnarsson 2, Vignir Svavarsson 1, Bjarni Fritzson 1.
Nikola Karabatic skoraði 10 mörk fyrir Frakka og markvörðurinn Thierry Omeyer varði mjög vel.
Jaliesky Garcia var veikur og var ekki með liðinu í dag. Sverre Jakobsson kom inn í hópinn.