Jaliesky Garcia er veikur og verður ekki með íslenska landsliðinu í handknattleik á eftir þegar það leikur við Frakka í síðasta leik riðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik. Í hans stað kemur Sverre Jakobsson inn í hópinn sem mætir Frökkum klukkan 17.15.
Garcia er með kvef og hefur verið rúmliggjandi í dag að sögn Einars Þorvarðarson, framkvæmdastjóra HSÍ.
Líkt og gegn Slóvökum í gær þá leikur Ólafur Stefánsson ekki með í dag. Hann glímir við tognun í aftanverðu hægra læri en ástand hans verður metið fyrir fyrsta leikinn í milliriðlakeppninni sem hefst á þriðjudag.