Evrópumeistarar Frakka standa með pálmann í höndunum eftir 28:27 sigur á Spánverjum í milliriðli II á EM í handbolta. Þeir eru eftir í riðlinum með sex stig. Daniel Narcisse var markahæstur Frakka með 7 mörk. Litlu munaði að að Spánverjar næðu að jafna metin í lokin.