Ljóst er að Jaliesky Garcia verður ekki í leikmannahópi Íslands sem etur kappi við heimsmeistara Þjóðverja í Þrándheimi í dag. Einar Þorvarðarson framkvæmdastjóri HSÍ staðfesti það í samtali við mbl.is í dag. Garcia hefur ekki jafnað sig af veikindum en hann gat ekki spilað á móti Frökkum á sunnudaginn vegna þeirra.
Það skýrist fyrr en einum klukkutíma fyrir leik hvaða annar leikmaður verður ekki í leikmannahópnum en aðeins er leyfilegt að vera með 14 leikmenn á leikskýrslu.