Jaliesky Garcia á enn við veikindi að stríða og verður ekki með íslenska landsliðinu sem mætir Ungverjum í öðrum leik sínum í milliriðli á Evrópumótinu í handknattleik í Þrándheimi í kvöld.
Garcia hefur átt við slappleika að stríða frá því um helgina, hefur kastað ítrekað upp og hugsanlega hefur hann smitast af Sverre Jakobsson sem fékk vírussýkingu á æfingamóti landsliðsins í Danmörku. Telja má víst að Garcia verði heldur ekki með Íslendingum á morgun en þá leika þeir gegn Spánverjum.