Sverre Jakobsson kemur inn í íslenska landsliðshópinn sem etur kappi við Ungverja í öðrum leik sínum í milliriðli Evrópumótsins í Þrándheimi í kvöld. Sverre kemur inn í hópinn fyrir Einar Hólmgeirsson sem er hvíldur en áður hafði komið fram að Jaliesky Garcia verður ekki með þar sem hann á enn við veikindi að stríða.