14 mörk Sigurðar dugðu Eyjamönnum ekki

Sigurður Bragason, lengst til vinstri, hlýðir á þjálfara sinn Gintaras …
Sigurður Bragason, lengst til vinstri, hlýðir á þjálfara sinn Gintaras Savukynas. mbl.is/Árni Sæberg

14 mörk frá Sigurði Bragasyni dugðu Eyjamönnum ekki til sigurs er þeir heimsóttu topplið N1 deildarinnar í handknattleik, Hauka, á Ásvelli. Haukar höfðu undirtökin í leiknum og innbyrtu sigur 32:28 þrátt fyrir góða baráttu gestanna.  

Haukar hafa tveggja stiga forskot á Fram á toppi deildarinnar en ÍBV er áfram í neðsta sætinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert