Íslendingarnir voru atkvæðamikilir í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Logi Geirsson skoraði 10 mörk fyrir Lemgo í sigri liðsins á Grosswallstadt, 36:29.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk og Róbert Gunnarsson 3 þegar Gummersbach gerði óvænt jafntefli við Essen, 27:27.
Alexander Petersson skoraði 7 af mörkum Flensburg og Einar Hólmgeirsson eitt þegar liðið burtaði Hamburg, 39:28, í toppslag deildarinnar.
Kiel er efst í deildinni með 40 stig, Flensburg 39, Hamburg 36, Nordhorn 34.