,,Florentina, Alina og Rakel voru drjúgar á lokakaflanum. Svona leikur vinnst ekki á einhverjum óvæntum ,,trixum" heldur vinnu yfir allt tímabilið," sagði Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari nýkrýndra bikarmeistara Stjörnunnar við fréttavef Morgunblaðsins eftir leikinn við Fylki í dag þar sem Stjarnann tryggði sér bikarmeistaratitilinn með sigri, 25:20.