Snorri með 4 mörk í sigurleik GOG í Meistaradeildinni

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir GOG. Matthias Ingimarsson …
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir GOG. Matthias Ingimarsson © 2007 mbl.is/Matthías Ingimarsson

Danska liðið GOG sigraði ungverska liðið Pick Szeged, 28:25, í Meistaradeild Evrópu í handknattleik en liðin áttu við í Danmörku í dag. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 4 af mörkum GOG en Ásgeir Örn Hallgrímsson náði ekki að skora.

GOG hefur 6 stig eins og Barcelona en Pick Szeged og Celje Lasko hafa bæði 2 stig. Tvær umferðir eru eftir og kemst efsta liðið áfram í undanúrslitin svo baráttan er á milli GOG og Barcelona sem eigast við Katalóníu um næstu helgi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert